já...ég er nú ekki mikið fyrir neinn þorramat...ætla nú samt auðvita að fara á þorrablótið í Búðardal sem er núna á laugardaginn! 
Það er nú ekkert að frétta hérna úr gettóinu....
Skólinn byrjaður á fullu en er ekki ennþá búin að fá fastar vaktir á Hrafnistu...
Þarseinustu helgi var skellt sér niðrí bæ ásamt Stebba, Heiðrúnu og Kata...það var mjög skemmtilegt hjá okkur á hnakkastaðnum Sólon
en ákváðum síðan að drífa okkur af stað hnakkanna og ljósabekkja stelpnanna og skella okkur á eitthvað aðeis menningarlegra...þegar við komum út af sólon fór hann Stefán heim en héldum við áfram og skelltum okkur inn á celtic! þar hittum við Elías stóra bro (suprise suprise) og fleiri 1/2 dalamenn...
Um 7 leitið var haldið af stað í leigubílaröðina og drapst hún Heiðrún mín þegar við náðum loksins bíl(hún á eftir að neita því....en satt skal vera satt!
 
Okkur Kata langaði í smá meiri bjór og röltu við yfir til hans Elvar þar sem við sátum og spjölluðum langt frameftir...Kati fór um 9 en ég varð eftir hjá Ella og spjölluðum við um allt á milli himins og jarðar til kl 10 um morguninn...æðislega skemmtilegt
Takk fyrir spjallið Elvar 
Seinustu helgi fórum við stelpurnar ( ég, Anna P, Anna R, Kata, Linda Sif, Eggrún og Heiðrún) út að borða...fórum á Ask....var nú ekkert mjög sátt við pastað sem ég fékk...fannst það ekkert gott 
Síðan var komið heim til mín og drukkið og drukkið
...Eggrún var svo góð í því að hún stútaði heilli rauðvínsflösku á no time! hehe það var sko aldeilis mikið drukkið ( tókum um 100 flöskur til daginn eftir (allt frá bjór uppí rauðvínsflöskur uppí vodkaflöskur uppí tequila og fleira hehe))
Síðan var skellt sér down town og þar var mikið tjúttað...skildumst reyndar að en við skemmtum okkur samt!
Ég, Önnurnar, Eggrún og Davíð enduðum á Glaumbar, sjúkrabíll og löggur fyrir utan...og hef ég aldrei séð jafn fáa þegar klukkan er orðin svona margt...vorum þarna um 4:30...þá kom í ljós seinna að sjúkrabíllinn og löggubíllinn voru ekki bara skraut þarna fyrir utan...heldur þá var einhver gaur sem meisaði (piparsprey) bara alla þarna inni...en það leið nú ekki á löngu þar til að staðurinn var stappaður aftur!
en jæja...þetta er nú aldeilis blogg hjá mér...svo þið verðið að kvitta!
og svo ALLIR að koma á Þorrablót í Dalabúð laugardaginn 26. janúar!! 
...svo er eitthvað að myndum komnar inn á www.gyda.vefalbum.is
....sýnið þolinmæði krakkar mínir...fer að setja fleiri inn! 
ykkar einlæga fyllibytta
Gyða
